<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-11T13:23:47" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:25:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:23:47">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég ætla að leyfa mér að segja, af því að ég hef setið
    með hv. þingmanni í fjárlaganefnd og hann segir að við höfum líka rætt
    þetta fyrir ári, að mér líður eins og öll okkar samtöl séu um þyrlur. En
    það er bara mjög gott, af því að ég skil og skynja ástríðu þingmannsins
    fyrir þessum málaflokki og eftir að hafa verið í þessu ráðuneyti núna í 20
    mánuði þá skil ég alltaf betur og betur hvað þingmaðurinn á við og hvert
    mikilvægið er.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eitt sem hefur t.d. komið mér aðeins á óvart þegar maður skoðar
    verkefni Landhelgisgæslunnar, þegar maður skoðar verkefni þyrlnanna okkar,
    er hversu veigamikill þáttur þær eru í heilbrigðisþjónustu við landsmenn,
    grundvallarþáttur í heilbrigðisþjónustu við landsmenn og ferðamenn sem
    hingað koma. Í því samhengi þætti mér skipta miklu máli, komi til þess að
    við fáum fjórðu þyrluna, að hún verði staðsett á Akureyri. Þar held ég að
    hún gæti þjónað landsmönnum okkar gríðarlega vel. Svo fer þetta auðvitað
    saman, öryggis- og varnarmálin, leit og björgun og síðan þessi
    grundvallarþáttur sem heilbrigðisþjónustan er. En þingmaður sér auðvitað
    hvernig frumvarpið lítur út. Það er eitt að ræða að þyrla sé ekki
    hilluvara en þyrla er ekki fjármögnuð í þessu fjárlagafrumvarpi, því
    miður. Ég vildi gjarnan standa hér og segja aðra sögu en þá. En svona
    stendur þetta núna. Ég er þeirrar skoðunar að það sé mjög mikilvægt að
    horfa til fjölgunar þyrlna og ég veit að það hefur verið um þetta rætt og
    það er mikill áhugi innan ríkisstjórnarinnar. Það eru auðvitað ákveðnar
    viðbótarfjárheimildir núna til öryggis- og varnarmála og það á eftir að
    forma það nánar í fjárlagavinnunni hvernig þeim verður ráðstafað. Ég er
    þeirrar skoðunar að það færi mjög vel á því að hluti renni þar til
    Landhelgisgæslunnar. En liðurinn Þyrla er einfaldlega ekki í þessu
    fjárlagafrumvarpi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>