<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T13:25:59" skst="NTF" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:27:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:25:59">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það er einmitt málið. Maður sá þegar fjármálaáætlun
    var samþykkt í júní að það er mjög litlu bætt við inn í þennan ramma sem
    tengist 1,5%. Nú er búið að tala um að þetta sé komið í 0,92%, það sem
    myndi falla undir 1,5%. Það er mjög takmarkað sem kemur inn í
    fjármálaáætlun á næstu fjórum, fimm árum til málaflokksins. Það er miðað
    við 1,5%, og að því sé náð 2035. Það er raunverulega verið að vísa málinu
    til næsta kjörtímabils. Ef við ætlum að ná 1,5% kemur það inn af mikilli
    þyngd í staðinn fyrir að þessu sé mjatlað, að jafnaði 3–4 milljarðar á ári
    í aukningu, til að koma þessu upp í 1,5%. Þannig að ég hvet ráðherrann til
    að taka þetta inn í næstu fjármálaáætlun og tala fyrir málinu. Við þekkjum
    það náttúrlega að til að vera verðugur bandamaður og allt sem því fylgir
    þurfum við að standa okkur í stykkinu <ns:bjalla/> þegar kemur að þessum
    málum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>