<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-11T13:27:16" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:28:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:27:16">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Eins og þingmaðurinn nefnir er auðvitað næsta samtal og
    ákvörðun í fjármálaáætlun, kannski ekki beinlínis í fjárlögum sem útfæra
    síðan fjármálaáætlun. En ég get þó sagt þetta: Á fundi sem ég átti með
    forstjóra Landhelgisgæslunnar, ég held það hafi verið í gær, ræddum við um
    greiningu á framtíðarflota Gæslunnar og þá sérstaklega með tilliti til
    þess að tryggja flotann áfram þegar gildandi leigutími rennur út. Það eru
    nokkur ár eftir af leigutímanum, ég ritaði t.d. undir einn samning til 10
    ára, en þá þarf að búa í haginn og það þarf að gera það tímanlega af því,
    eins og þingmaðurinn segir, þyrlur eru sannarlega ekki hilluvara.
    Landhelgisgæslan hefur hafið þessa greiningarvinnu og ég tala fyrir því og
    minn ráðuneytisstjóri hefur þegar sett sig í samband við
    fjármálaráðuneytið um að það verði settur upp stýrihópur til að forma
    næstu skref. Það er eitt að fjármagna en síðan þarf líka að vinna þetta
    þannig að við séum með góðan fyrirvara þegar ákvarðanir eru
    teknar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>