<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T13:28:43" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:30:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:28:43">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hér til
    þessarar umræðu. Mig langar að reyna að átta mig aðeins betur á áformuðum
    aðhaldsaðgerðum innan þeirra liða sem falla undir ráðuneyti hæstv.
    ráðherra. Það hefur verið farið yfir þetta svona á stangli í andsvörum við
    hæstv. ráðherra í dag. Mig langar til að spyrja hvernig aðhaldskröfur
    sundurliðast innan almanna- og réttaröryggisins og hversu stór hluti á að
    koma frá sameiningu sýslumannsembættanna sem ganga í garð núna 1. janúar.
    Þetta kom að einhverju marki fram í samtölum við hv. þm. Stefán Vagn
    Stefánsson, en mig langar sérstaklega að spyrja hvort gert sé ráð fyrir
    einhverjum sparnaði eða hagræðingu af áformum hæstv. ráðherra um
    sameiningu lögregluembætta. Þó að frumvarpið sé ekki komið fram, þó að
    kannski sé gengið of snemma um gleðinnar dyr, ætla ég að spyrja hvort
    ráðherra sé tilbúin að upplýsa um áformaðan gildistökutíma á sameiningu
    lögregluembættanna, komi það frumvarp fram nú á haustþingi eins og
    ráðherra tilgreindi hér áðan.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>