<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-11T13:30:29" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:32:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:30:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Hann spyr
    um málefnasviðin almanna- og réttaröryggi og svo sýslumann. Sýslumaður
    heyrir ekki þar undir en ég fór aðeins yfir það hér áðan hvernig
    fjárveitingar til sýslumannsins líta út. Þar er aðhald en það er aðhald
    sem er óháð sameiningunni, það hefði komið til hvort sem við værum með níu
    sýslumenn eða þetta nýja embætti. Það var svarið við því. Af því að við
    undanskiljum, eins og við framast getum, lögreglu, ákæruvald og dómstóla
    og það er ákveðið aðhald á sýslumönnum hins vegar — en eins og ég segi þá
    er það óháð sameiningunni. Hins vegar hefur það áhrif að við erum að fækka
    í yfirstjórnunarlaginu þannig að 1% aðhaldskrafa hefur ekki áhrif á fjölda
    starfsmanna hjá nýju sýslumannsembætti þegar sýslumennirnir eru hættir
    störfum. Hvað lögreglu varðar og fjárveitingar til hennar þá er það rétt
    sem þingmaðurinn segir að frumvarpið um sameiningu er ekki komið fram. En
    þegar við horfum á útgjöld til lögreglu í þessu fjárlagafrumvarpi þá eru
    það 30,5 milljarðar. Þar er hagræðingarkrafa um 300 milljónir, sem er
    pínulítil sneið, og verður útfærð með þeim hætti að starfsmenn aðrir en
    lögreglumenn eða þjónusta önnur en eiginleg löggæsla taki þá smávægilegri
    hagræðingarkröfu. Ég hef verið alveg skýr með það að markmið mitt með
    þessum sameiningum innan lögreglu sé að búa til færri og stærri
    lögregluembætti til að til framtíðar verði hægt að fjölga lögreglumönnum.
    Það eru engin fyrirheit um fleiri lögreglumenn samkvæmt þessu
    fjárlagafrumvarpi enda er þetta þungt frumvarp. Ég lít svo á að sem
    dómsmálaráðherra sé mér að takast að verja þessa framlínu með því að ekki
    sé verið að fara í eiginlegt aðhald á lögreglu, dómstóla og
    ákæruvald.<ns:bjalla/> Ég get ekki svarað því alveg skýrlega upp á punkt
    og prik, eða krónur og aura, hvað sameining í frumvarpi sem ekki hefur
    verið lagt fram mun fela í sér. Markmiðið er í öllu falli ekki hagræðing
    og hagræðingu sérðu ekki heldur í fjárlagafrumvarpinu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>