<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T13:33:03" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:33:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:33:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Hér í seinni innkomu
    minni langar mig að spyrja sérstaklega um mjög afmarkaðan þátt, þ.e. með
    hvaða hætti hæstv. ráðherra sér fyrir sér þróun á starfsaðstæðum
    sérsveitarinnar á þessu ári og hvort hún sjái einhver frekari áform til
    lengri tíma litið; ég spyr samt sérstaklega um það fjárlagaár sem nú
    liggur fyrir, árið 2027. Eru einhverjar breytingar þar sem ráðherrann
    leggur áherslu á, breytingar sem eru kannski ekki sýnilegar með beinum
    hætti í fjárlagafrumvarpinu?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>