<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-11T13:33:51" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:34:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:33:51">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Í fyrra var sérsveitarmönnum fjölgað um tvo.
    Tveir lögreglumenn af hinum 50, hin varanlega aukning, fóru til
    sérsveitar. Ég er afdráttarlaust þeirrar skoðunar að hér þurfi að gera
    betur og að íslensk sérsveit, gamla góða víkingasveitin, þurfi að vera
    stærri. Hún þarf að verða stærri og hún þarf að vera fjölmennari. Þetta er
    einn þeirra þátta innan löggæslunnar sem mér finnst blasa við að heyri
    undir það að efla viðbragðsgetu okkar, þ.e. að við séum þar að horfa á
    sérsveit, greiningardeild og almannavarnir, þessar stoðir sem í dag
    tilheyra ríkislögreglustjóra, fremur en að við séum að blanda almennri
    löggæslu í málið. Það er ekki pláss fyrir viðbætur eins og
    fjárlagafrumvarpið lítur út núna en dómsmálaráðherra þiggur allan stuðning
    þingsins þannig að við getum gert betur til lengri tíma litið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>