<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T13:35:08" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:37:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:35:08">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Mig langar í síðari atrennu við hæstv.
    dómsmálaráðherra að spyrja aðeins út í löggæsluna. Mér rennur blóðið til
    skyldunnar þar. Ef maður skoðar fjárlagafrumvarpið þá er hækkun á milli
    ára í löggæslunni örlítil, milljarður. Ég vil ekki gera lítið úr því en
    mér sýnist samt, ef maður skoðar sömu töflu, að þetta sé undir þeim
    fjárheimildum sem voru árið 2025. Af hverju er ég að velta þessu fyrir
    mér? Jú, vegna þess að hæstv. dómsmálaráðherra boðaði fjölgun
    lögreglumanna, 50 stöðugildi, sem mér skilst, og hef ekki staðfestingu
    fyrir, að þau séu ekki öll komin til starfa eða að við höfum ekki náð að
    fylla þessi 50 stöðugildi. Hæstv. dómsmálaráðherra leiðréttir mig ef það
    er rangt. En nú heyri ég mjög mikið frá mínum gömlu félögum víðs vegar um
    landið og á höfuðborgarsvæðinu að það vanti sárlega lögreglumenn.
    Verkefnin hafa breyst, eru orðin erfiðari og flóknari, og spurningarnar
    eru því þessar: Hver er staðan á þessum 50 stöðugildum? Er fjármagn fyrir
    þeim inni í frumvarpinu 2027 og hvaða leiðir er dómsmálaráðherra að skoða
    varðandi enn frekari fjölgun lögreglumanna? Eins langar mig að spyrja út í
    fjármögnun á sérsveit ríkislögreglustjóra sem mér skilst að sé komin í
    miklar kröggur og að þeir séu orðnir verulega aðþrengdir þegar kemur að
    fjárveitingu sem er farið að hamla þeirra starfsemi, <ns:bjalla/> sem er
    mjög vond þróun.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>