<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T13:39:32" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:40:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:39:32">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir skýr
    svör. Mér fannst ekki alveg koma fram varðandi það hvernig við sjáum það
    fyrir okkur að reyna að fylla upp í þessi stöðugildi vegna þess að það er
    líka náttúrlega leki á hinum endanum, lögreglumenn eru að hætta vegna
    aldurs og alls konar ástæðna. Það er því mikil þörf á mannskap á hverju
    ári í lögregluna bara út af náttúrulegum aðstæðum, ef það má kalla það
    svo. Ég held því að það sé mjög mikilvægt að við setjum einhverja
    markvissa vinnu í gang hvað það varðar. Mig langaði að spyrja sérstaklega
    hér í lokin aftur varðandi sérsveit ríkislögreglustjóra, hvort hæstv.
    dómsmálaráðherra myndi taka því óstinnt upp ef fjárlaganefnd myndi taka
    þetta til skoðunar inni í nefnd og í vinnu nefndarinnar í vetur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>