<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-11T13:40:53" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 13:42:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T13:40:53">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Eins og ég nefndi hér áðan hafa embættin
    hringinn í kringum landið fengið fjármuni til þess að ráða í þessar
    stöður. Það er síðan verkefni lögreglustjóranna að fylla í stöðurnar og
    ráða í þær. Það er því embættanna sjálfra að ráðstafa þessum fjármunum en
    þeir eru komnir fram. Ég vil auðvitað mjög gjarnan að það verði gert og ég
    veit til þess að það hefur ekki að öllu leyti tekist. Varðandi fjármunina
    þá var upphaflega gert ráð fyrir að fjármögnun kæmi inn í áföngum, á
    árunum 2026–2028, en það var hins vegar ákveðið að flýta henni og
    fjármagna fjölgunina alla árið 2026.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi sérsveitina. Staðan er sú sem hún er og við sem þekkjum
    til vitum að hún er alls ekki nógu góð og það er vandi sem hefur blasað
    við í nokkur ár. Það hefur líka verið viðvarandi vandamál með fjármál hjá
    ríkislögreglustjóra. Nú er verið að vinna góða vinnu þar. Ég tel líka að
    sameiningarvinnan eða frumvarpið þar feli í sér ákveðin tækifæri og ég er
    þeirrar skoðunar að taki fjárlaganefnd nú að sér að fara að skoða stöðu
    sérsveitarinnar þá megi t.d. horfa á betri fjármögnun hennar í gegnum það
    markmið stjórnvalda að ætla að fjárfesta með markvissari hætti í öryggis-
    og varnarmálum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>