<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-11T14:01:02" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:05:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:01:02">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Hvað sögðum við í Samfylkingunni fyrir síðustu
    alþingiskosningar? Við sögðumst ætla að negla niður vexti með því að hætta
    að reka ríkið á yfirdrætti. Þetta er sleggjan. Þetta er meðalið sem
    hagkerfið okkar þarf eftir áratug af lausatökum. Bara sú vaxtalækkun sem
    hefur orðið frá því að við vorum í kosningabaráttu árið 2024 hefur skilað
    sér í því að heimili með óverðtryggð lán spara tugi þúsunda í afborganir á
    hverjum mánuði, og þessi þróun þarf að halda áfram. Þetta skiptir máli og
    fyrir ríkissjóð skiptir máli að binda enda á hallareksturinn og
    skuldasöfnunina þannig að við getum notað peningana okkar í að styrkja
    innviðina og velferðina frekar en í uppsprengdan vaxtakostnað. Þetta er
    verkefnið. Núverandi ríkisstjórn mun ekki beygja sig, hún mun ekki bogna
    frammi fyrir óraunhæfum kröfum um stóraukin útgjöld og minni tekjur. Það
    kemur ekki til greina. Það þarf að koma röð og reglu á ríkisreksturinn og
    það er það sem við höfum verið að gera, það sem við erum að gera með
    þessum fjárlögum. Stóra núllið er ekki vegna þess að við séum á valdi
    einhverra trúarbragða um að það megi aldrei vera halli á rekstri ríkisins.
    Það eru aðstæðurnar sem skipta máli hverju sinni og þegar við höfum árum
    saman horft upp á verðbólgu langt umfram markmið og einhverja hæstu
    seðlabankavexti í okkar heimshluta, þá þarf að taka til. Þá þarf að senda
    afgerandi skilaboð og taka á sjúkleikanum í íslensku efnahagslífi. Meðalið
    kann að vera vont á bragðið þegar við erum að taka það inn en það mun
    lækna meinið sem verið hefur allt of lengi á íslensku hagkerfi, sem hefur
    bitnað á veski heimilanna og bókhaldi fyrirtækjanna með allt of háum
    íþyngjandi vöxtum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvernig eyðum við hallanum? Hvernig gerum við þetta? Við byrjuðum
    á sjálfum okkur í fyrsta lagi. Við byrjuðum á því að fækka ráðuneytum,
    fækka ríkisstofnunum, fækka verkefnum, setja þak á launahækkanir æðstu
    embættismanna og þjóðkjörinna fulltrúa sem gildir til næstu ára, draga úr
    sporslum þar sem forsætisráðherra fór fremst í flokki eins og menn muna.
    Og hvert erum við komin núna? Núna erum við með fjárlög sem fela í sér
    mestu aðhaldsaðgerðir á útgjaldahlið ríkisins í meira en tíu ár,
    umfangsmestu hagræðingaraðgerðir sem sést hafa á þessum áratug. Við erum
    núna loksins að ná útgjöldunum niður í 30% af vergri landsframleiðslu í
    lægsta hlutfall sem sést hefur á þessum áratug, 44 milljarða aðhald, 44
    milljarða aðhaldsráðstafanir, sem eru tíundaðar rækilega í 5. kafla
    fjárlagafrumvarpsins og auðvitað í umfjöllun um hvert málefnasvið fyrir
    sig. Við erum því að sækja u.þ.b. 2 kr. með aðhaldsaðgerðum í útgjöldum
    fyrir hverja 1 kr. sem við sækjum með aðgerðum á tekjuhlið. Á
    tekjuhliðinni munar mestu um bankaskattinn, enda hefur komið á daginn að
    lækkun bankaskattsins skilaði sér ekki til neytenda og fyrirtækja með þeim
    hætti sem lofað var þegar skatturinn var lækkaður þannig að sú lækkun
    gengur að hluta til til baka, ekki að öllu leyti en að hluta til.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í öðru lagi erum við að afnema sérstakan skattafslátt fyrir
    baðlón. Það er eðlileg breyting á virðisaukaskattskerfinu. Ég blæs á hvers
    kyns tal um að þetta sé landsbyggðarskattur. Mikill meiri hluti teknanna
    mun koma frá suðvesturhorninu, frá nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Í þriðja
    lagi erum við vissulega að hækka kílómetragjaldið en við hækkuðum það
    helmingi minna en gert var ráð fyrir, bæði í síðustu fjármálaáætlun
    þessarar ríkisstjórnar og í fjármálaáætlun síðustu ríkisstjórnar. Þar var
    gert ráð fyrir miklu umfangsmeiri gjaldtöku gagnvart ökumönnum í landinu
    sem núverandi ríkisstjórn hefur skrúfað til baka. Þetta er í raun
    skattalækkun miðað við þá fjármálaáætlun sem áður var unnið eftir og ég
    held að við ættum að fagna því þvert á flokka hér í þessum sal.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Um leið og við lokum loksins fjárlagagatinu erum við að halda
    áfram að styrkja Ísland. Við erum að endurheimta virðingu fólks á efri
    árum með sterkara heilbrigðiskerfi, fleiri hjúkrunarrýmum og fleiri
    stöðugildum heimilislækna. Við erum að lækka orkuverð í dreifbýli, ráðast
    í kerfisbreytingar á húsnæðismarkaði og styðja fleiri fyrstu kaupendur.
    Við erum á metframkvæmdaári í orkugeiranum og í samgöngumálum. Við höfum
    stóraukið framlög til viðhalds vega, náð stjórn á útlendingamálum, tekið
    málefni barna með fjölþættan vanda föstum tökum og stöðvað kjaragliðnun
    lífeyris og launa. Þetta eru breytingar sem bæta daglegt líf fólks um land
    allt á hverjum einasta degi og styrkja Ísland.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hallalaus fjárlög, stóra svarta núllið, munu styrkja Ísland og
    styðja við markmið okkar um að endurheimta efnahagslegan stöðugleika á
    Íslandi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>