<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T14:06:07" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:08:32 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:06:07">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna. Þetta
    hefur kannski ekki verið mjög skemmtileg umræða, alvarleg, og svo kemur
    hæstv. ráðherra með gamanmál. Takk fyrir það. Þetta var mjög frískandi.
    Náttúrlega algerlega galið það sem hæstv. ráðherra var að segja og
    algerlega nýtt að eigna sér vaxtalækkun þegar Samfylkingin byrjaði í
    kosningabaráttu. Fyrirgefðu, sleggjan hefur ekki virkað. <ns:frammíkall skst="umhv.-, orku- og loftslrh."/> — Virðulegi forseti, er hægt að láta
    hæstv. ráðherra slaka á eða?</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="KÁB"> Forseti biður um hljóð í salnum. Að það
    séu ekki samtöl.</ns:forseti></ns:mgr>

    <ns:mgr>Þessi ríkisstjórn hefur náttúrlega bara verið í því að hækka
    vexti, hafa ekki gert neitt með ábendingar faglegs fjármálaráðs, hækkað
    ríkisútgjöld sem aldrei fyrr og hækkað skatta um 60 milljarða, en látum
    það liggja milli hluta. Ég ætla að spyrja hæstv. ráðherra út í það sem
    hann talaði alls ekki um, sitt málefnasvið. Enn ein skattahækkunin er sú
    að fara í svokallaðan náttúrupassa og ég held að það eigi að ná einhverjum
    6 milljörðum þar. Markmiðið, eins og ég skil það og hefur verið kynnt
    fyrir almenningi, er að bæta innviði á ferðamannastöðum, friðlýstum svæðum
    og þjóðgörðum. Menn hafa undanfarin ár verið með sértekjur á þessum svæðum
    og hugmyndin er sú að þeir sem nota þjónustuna greiði. Til að setja það í
    eitthvert samhengi, virðulegi forseti, þá hefur þetta farið úr kannski 200
    millj. kr. 2021 í rúmlega 2,2 milljarða ef marka má fjárlögin núna og
    ríkisstjórnin er að bæta í þessar sértekjur, bæði í síðasta
    fjárlagafrumvarpi og núverandi til þess að fjármagna þessa starfsemi.
    Þetta eru tveir skólar, annaðhvort lætur þú þann sem notar borga eða þú
    ferð í almenna skattlagningu, en nú ætlar ríkisstjórnin að halda áfram í
    þessum sérstöku gjöldum, sem ég tel vera skynsamlegt, en ætlar síðan
    <ns:bjalla/> að bæta náttúrupassanum ofan á.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hvernig getur þetta gengið eftir? Hvað ætla
    menn að ganga langt í þessu, annars vegar í gjöldunum á þeim sem nýta
    þetta, sem er stóraukning á milli ára <ns:bjalla/> miðað við þetta
    frumvarp og það síðasta, og síðan að koma með annan skatt í ofanálag til
    að gera sama hlutinn?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>