<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-11T14:08:43" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:09:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:08:43">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og
    það er gott að geta lífgað aðeins upp á andrúmsloftið hér í þessum sal.
    Hv. þingmaður spyr um náttúru- og innviðagjaldið. Ég held að það sé löngu
    tímabært að framkvæma þetta. Þetta er auðvitað aðgerð sem er á ábyrgð
    atvinnuvegaráðuneytisins en þau hafa unnið þetta vel með okkur. Eins og
    hv. þingmaður þekkir væntanlega þá stendur ekki til að náttúru- og
    innviðagjaldið taki til allra náttúruperlnanna, það stendur ekki til að
    það taki til allra þeirra svæða sem t.d. í dag er verið að rukka
    bílastæðagjöldin inn á, þannig að það skýrir kannski það sem hv. þingmaður
    minntist á varðandi það að það er áfram gert ráð fyrir ákveðnum sértekjum
    vegna friðlýstra svæða og þjóðgarðanna vegna þess að sumir þeirra standa
    utan gildissviðs náttúru- og innviðagjaldsins.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>