<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T14:09:50" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:11:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:09:50">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Þessi svör hæstv. ráðherra ganga ekki alveg
    upp. Röksemdir fyrir náttúrupassanum eru þær að það sé einhvern veginn
    verið að greiða fyrir aðgang að náttúru landsins vegna þess að það er álag
    og menn þurfa að setja bílastæði, göngustíga, salerni og annað slíkt. Það
    er búið að hækka á nokkrum árum þessi gjöld um 2 milljarða á ári þannig að
    miðað við 2027 eru þetta 2,2 milljarðar til að sinna nákvæmlega þessu og
    ef menn ætla að setja þennan náttúrupassa, sem er einstaklega vond
    hugmynd, þá hljóta menn að taka þessa gjaldtöku niður eða taka hana af. En
    það sem ríkisstjórnin segir er: Við ætlum að efla innviðina á þessum
    viðkvæmu svæðum og erum með tvenns konar gjaldheimtu, sérstaka sem hefur
    komið okkur í 2,2 milljarða miðað við þetta frumvarp og setja síðan 6
    milljarða í viðbót.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>