<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-11T14:11:15" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:12:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:11:15">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Það er
    alveg rétt að þessi gjöld hafa verið að hækka, bílastæðagjöldin og gjöld
    vegna þjónustu sem fer fram á þessum svæðum. Hvort það þarf að dreifa
    þessu með einhverjum öðrum hætti niður á útgjalda- og tekjuhlið eftir að
    náttúru- og innviðagjald tekur gildi þekki ég ekki. Ég get alla vega
    fullvissað hv. þingmann um að það stendur ekki til að rukka bæði
    bílastæðagjald og náttúru- og innviðapassa fyrir friðlýst svæði og fyrir
    þjóðgarðana okkar. Þetta verður að einhverju leyti tvískipt kerfi þar sem
    við erum að byrja á ákveðnum náttúruperlum og fikra okkur áfram.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>