<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T14:12:14" skst="MRK" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:13:57 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:12:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir
    prýðisgóða ræðu og yfirferð um stöðu mála. Eins og hæstv. ráðherra segir
    erum við að hætta að greiða yfirdráttinn. Það er rándýrt sport að vera í
    stöðugum yfirdrætti. Við þekkjum það úr heimilisrekstrinum að það skiptir
    miklu máli að greiða niður skuldir og koma okkur yfir núllið þannig að við
    getum farið að byggja undir stöðugleika og fyrirsjáanleika til lengri
    tíma. Það er sannarlega besta kjarabótin sem við getum gefið heimilum og
    fyrirtækjum í landinu, þ.e. að ná fyrirsjáanleika og stöðugleika.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En mig langar aðeins að nýta tímann sem ég hef hér í mínu fyrra
    andsvari til að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í endurheimt vistkerfa og
    fjármagn því tengt. Mig langar að vita aðeins um það hver áformin eru.
    Hvað ætla stjórnvöld að gera þegar kemur að því að endurheimta vistkerfi?
    Hver er ávinningurinn hvað það varðar og hvernig er slíkur ávinningur
    mældur? Það væri áhugavert að vita það því að í loftslagsumræðunni eru oft
    mjög óáþreifanlegir mælikvarðar og við sjáum kannski ávinninginn ekki
    strax. Það er því spurning hverjir fjárhagslegu hvatarnir eru þegar kemur
    að því að tryggja að við setjum aukinn kraft í loftslagsmálin til að ná
    betri tökum á þeim. Það er kannski það sem ég væri forvitin að fá að heyra
    í fyrsta kasti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>