<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-11T14:14:11" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:15:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:14:11">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa
    fyrirspurn. Eins og kemur fram í frumvarpi til fjárlaga þá hækkar
    fjárheimildin sem ber heitið Náttúruvernd, skógrækt og landgræðsla um 228
    millj. kr. vegna tímabundinna verkefna. Þar vegur þungt styrking átaks til
    endurheimtar á ríkisjörðum. Það er gaman að segja frá því að þar erum við
    að fara að taka fyrstu skóflustunguna 24. september. Við viljum auðvitað
    að aukið fjármagn skili mælanlegum árangri og þá þjónar Land og skógur
    mjög mikilvægu hlutverki. Þar hefur líka verið unnið mjög þétt að
    vottunarkerfi sem ég tel að geti skapað skýrari og sterkari hvata, m.a.
    fyrir bændur en líka félagasamtök til að koma inn í þessi mál. En ég vil
    líka vekja athygli á nýju styrkjakerfi þar sem félagasamtök, sveitarfélög,
    bændur og fyrirtæki geta sótt um styrki til að endurheimta votlendi,
    endurheimta vistkerfi. Ein af nýlundunum þar er líka að við erum með
    sérstaka verndun kolefnisríkra vistkerfa inni í þessu. Það er því mjög
    margt spennandi í gangi í þessum málaflokki. Illu heilli hefur lítið
    votlendi verið endurheimt á síðustu árum en hið opinbera er að ganga fram
    með góðu fordæmi þegar kemur að ríkisjörðunum og þar sjáum við fyrir okkur
    að ná árangri strax á yfirstandandi ári sem mun þá líka koma fram í
    losunartölum Íslands.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>