<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T14:15:51" skst="MRK" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:16:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:15:51">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og er sammála
    því að það verður spennandi að fylgjast með því hvernig framvindan verður.
    Kannski í því skyni dettur mér líka í hug að beina einni fyrirspurn til
    hæstv. ráðherra. Það voru í umræðum áðan við hæstv. innviðaráðherra
    pælingar um niðurgreiðslu á rafhjólum eða ívilnanir þegar kemur að
    rafhjólum. Er það eitthvað sem stjórnvöld hyggjast kíkja á? Það er
    auðvitað þannig að það var einhver greining að koma um að fólk vill mjög
    gjarnan nýta aðra samgöngumáta en bílinn á milli staða og rafhjól hafa
    verið að koma mjög sterkt inn. Ég væri til í að heyra aðeins um
    það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo langaði mig aðeins líka að forvitnast um stöðuna á jöfnun
    kostnaðar við dreifingu raforku. Hver er staðan á því máli? Hvernig
    styrkjum við neytendavernd þegar kemur að orkumálum o.s.frv. og eftirlit
    með orkumarkaðnum? Kannski fá aðeins að vita stöðuna á því.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>