<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-11T14:17:03" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:18:29 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:17:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar spurningar. Fyrst vil ég víkja
    að rafhjólunum. Eitt af því sem gerðist í ársbyrjun 2025 var að felld var
    niður virðisaukaskattsívilnun vegna rafhjóla. Þá voru uppi ákveðnar
    hugmyndir um að nota styrkjakerfi Loftslags- og orkusjóðs til að styðja
    við slík kaup. Niðurstaðan, eftir að Umhverfis- og orkustofnun hafði farið
    vandlega yfir málið, var að það myndi kosta verulega fjármuni og ekki
    skila miklum loftslagsávinningi að koma upp slíku styrkjakerfi þannig að
    þar væri betur heima setið en af stað farið. Í staðinn styrktum við
    svokölluð „cargo“-hjól eða nytjahjól og höfum veitt slíka styrki úr
    Loftslags- og orkusjóði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo spurði hv. þingmaður um raforkueftirlit og neytendavernd á
    raforkumarkaði. Þar er ég mjög stoltur af þeirri vinnu sem hefur verið í
    gangi, sérstaklega núna á yfirstandandi ári, þar sem hagfræðingahópur með
    Axel Hall í broddi fylkingar er að vinna meiri háttar greiningu og styðja
    með faglegum hætti við raforkueftirlitið þegar kemur að neytendavernd og
    <ns:bjalla/> þegar kemur að því að endurskipuleggja í raun gjaldskrár til
    framtíðar til þess að við getum bæði auðvitað fjármagnað <ns:bjalla/>
    sterkt flutnings- og dreifikerfi en líka aukið samkeppnishæfni á Íslandi.
    Þetta er gríðarlega mikilvæg og spennandi vinna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>