<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T14:18:43" skst="IngD" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:21:03 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:18:43">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. umhverfis-, orku- og
    loftslagsráðherra fyrir hans ræðu hér áðan, eldræðu. Mig langar
    sérstaklega að ræða við ráðherrann um eitt mál á hans málefnasviði. Það er
    ETS2 og ef ég kemst inn í CBAM langar mig aðeins að spjalla um það líka.
    Það er þekkt að ETS-kerfið hefur reynst íþyngjandi fyrir Ísland. Þessi
    innleiðing viðskiptakerfis eða skattakerfis ESB með losunarheimildir hefur
    þegar haft veruleg áhrif á íslenskt atvinnulíf og samkeppnishæfni
    landsins. Þetta er alveg þekkt staða og í raun og veru held ég að hún sé
    óumdeilanleg að einhverju leyti, alla vega.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég sé núna á þingmálaskrá að það stendur til að innleiða
    ETS2-kerfið, því miður, og mig langar þess vegna að víkja að ETS-kerfinu
    og síðan ETS2-kerfinu sem nú á greinilega að innleiða. Mér finnst skipta
    máli að menn svari því í raun hvaðan þessar kvaðir sem fylgja ETS-kerfinu,
    sem er viðskiptakerfi Evrópusambandsins, koma í raun og veru. Við erum
    ekki í Evrópusambandinu, hafi menn ekki tekið eftir því, og það sem meira
    er, þjóðin hafnaði því fyrir nokkrum vikum að hefja aðlögunarviðræður á ný
    um aðild að Evrópusambandinu. Við erum hins vegar í EES og umhverfismálin
    eru hluti af EES-samningnum en það liggur þó fyrir hreint og klárt að
    skattamál eru ekki hluti af EES og ETS-kerfið er öðrum þræði skattamál og
    er sniðið að meginlandi Evrópu. Það er verið að leggja á gjöld og
    innheimta skatta með þessu kerfi. Hvernig varð þetta viðskiptakerfi ESB
    með losunarheimildir hluti af EES-samningnum? Mig langar líka að vita
    hvort t.d. Ísland hafi verið þvingað inn í þetta skattasamstarf vegna þess
    að skattamál eru ekki hluti af EES.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan langar mig að endingu að spyrja ráðherra: <ns:bjalla/> Telur
    hann koma til greina að Ísland hreinlega segi sig frá þessu ETS-kerfi,
    ekki síst eftir að nú virðist ljóst að ESB ætlar bara að gefa í?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>