<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-11T14:21:14" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:23:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:21:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína fyrirspurn.
    Hv. þingmaður byrjaði á að tala um ETS2-kerfið og það er hárrétt að
    innleiðing þess er á þingmálaskrá núna vegna þessa löggjafarþings. Í því
    sambandi vil ég greina frá því að við erum að vinna að útfærslu sem felur
    í sér að aðilar undir ETS2-kerfinu fái undanþágur frá heimildakaupum undir
    kerfinu á þeim forsendum að hér á landi sé nægilega hátt kolefnisgjald nú
    þegar. Þetta þýðir þá að innleiðing kerfisins á Íslandi hefði fyrst og
    fremst í för með sér einhvern kostnað en ekki gjöld með beinum hætti
    heldur snýst það um umsýslu, skráningu og annað slíkt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hitt vil ég segja að ETS-kerfið er hluti af loftslagsgerðum
    EES-samningsins. Það er langt síðan það var tekið inn í þennan samning og
    hér hafa trekk í trekk verið samþykktar í þessum sal breytingar á
    ETS-lögunum til að styðja við þátttöku Íslands í því samstarfi. Það kemur
    ekki til greina af minni hálfu eða þessarar ríkisstjórnar að gera neitt
    sem stefnir í EES-samningnum í voða. Þegar talað er um að ganga úr
    ETS-samstarfinu er í rauninni ekki verið að tala um neitt annað en að
    vanefna skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum. Það kemur ekki til greina
    vegna þess að það myndi stórskaða hagsmuni atvinnulífs og neytenda á
    Íslandi og þar hef ég sérstaklega áhyggjur af iðnaði á Íslandi. Ég hef
    áhyggjur af álinu og það sama gildir um CBAM í þessum efnum. Ég vonast
    bara eftir góðri samstöðu um það í þessum sal að efna EES-skuldbindingar
    og styrkja þannig EES-samstarfið. ETS2-kerfið og CBAM eru hluti af
    því.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>