<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T14:23:28" skst="IngD" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:24:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:23:28">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Mig langar að
    spyrja hann: Hvenær urðu skattamál hluti af EES? Hvenær varð innheimta
    skatta hluti af EES? Það væri fínt að fá svör við því hérna. Það er alveg
    ljóst að þetta ETS-kerfi hefur stórskaðað hagsmuni Íslendinga með óljósum
    og ófyrirsjáanlegum sköttum á flugferðir og skipaflutninga. Nú á að höggva
    í fleiri atvinnugreinar með ETS2, losunarheimildir fyrir byggingar,
    vegasamgöngur og viðbótargeira. Ergo: Þetta er skattur. Hvers vegna að
    innheimta gjöld og skatta með þessu kerfi þegar skattamál eru ekki hluti
    af EES? Hvers vegna er verið að stækka vont kerfi með ETS2 og svo CBAM? —
    sem ég mun ekki komast í að ræða við ráðherrann, því miður. </ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>