<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-11T14:24:37" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:25:57 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:24:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er langt síðan allir samningsaðilar að
    EES-samningnum féllust á að ETS-kerfið fæli í sér loftslagssamstarf,
    umhverfissamstarf, og það ætti að falla undir EES-samninginn. Það gerðist
    löngu áður en núverandi ríkisstjórn tók við. Ég get alveg tekið undir
    áhyggjur hv. þingmanns, t.d. af sjóflutningum, og mér finnst að mörgu
    leyti óskiljanlegt að ekki skyldi vera gengið rösklega til verka á síðasta
    kjörtímabili þegar kom að því að sækjast eftir undanþágum eða sérlausnum
    frá sjóflutningum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér hefur orðið breyting frá því að ný ríkisstjórn tók við. Við
    höfum verið að vinna að sérstökum greiningum og komið þeim á framfæri við
    framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vegna skipaflutninga og vegna sérstöðu
    Íslands sem eyríkis hérna í Norður-Atlantshafinu. Þarna held ég að geti
    verið sóknarfæri fyrir okkur nú þegar yfir stendur endurskoðun á
    ETS-kerfinu. CBAM er auðvitað hluti af þessu öllu. Þar sjáum við jákvæðar
    umsagnir, t.d. frá Alcoa og Elkem, og ég vil bara undirstrika hvað það að
    klára CBAM fyrir áramótin er mikilvægt upp á virkni EES-samstarfsins og
    ETS-kerfisins. <ns:bjalla/> Þetta snýst um samkeppnishæfni, m.a. íslensks
    ál- og kísiljárnsiðnaðar, og samkeppnishæfni iðnaðar í Evrópu, t.d. í
    samkeppni við Kína.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>