<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T14:26:06" skst="SHP" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:27:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:26:06">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. umhverfis-, orku- og
    loftslagsráðherra fyrir yfirferðina. Undanfarin ár hefur töluverð umræða
    farið fram um umfang þess fjármagns sem ríkið ver til loftslagsmála. Þar
    hafa oft verið nefndar háar fjárhæðir og ekki alltaf verið fyllilega ljóst
    hvaða verkefni og útgjöld liggja að baki þeim tölum. Mér finnst mikilvægt
    að framsetning sé eins gegnsæ og mögulegt er svo þingið og almenningur
    geti áttað sig á umfangi fjárveitinganna og því hvernig þeim er ráðstafað.
    Því langar mig að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað skýrir þær háu fjárhæðir
    sem hafa á undanförnum árum verið tilgreindar sem loftslagsfjármagn, í
    hvaða verkefni og aðgerðir renna þessir fjármunir í reynd og eru verkefni
    á borð við borgarlínu enn talin til loftslagsfjármagns eða hefur því verið
    breytt hvaða útgjöld falla þar undir?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>