<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-11T14:27:10" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:29:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:27:10">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa
    fyrirspurn því ég held að það sé mikilvægt að auka skýrleikann hvað þetta
    varðar. Hér hefur svolítið tíðkast um nokkurra ára skeið að talin séu til
    ýmis útgjöld, jafnvel útgjöld sem hafa ósköp lítið með loftslagsmál að
    gera og þau kölluð loftslagsútgjöld, að því er virðist, vegna þess að hér
    voru ríkisstjórnir við völd sem vildu tala með mjög uppsprengdum hætti um
    loftslagsaðgerðir frekar en að vera með fæturna á jörðinni og reyna að ná
    raunhæfum markmiðum og láta orðum fylgja efndir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvað varðar borgarlínu t.d. þá held ég að það sé ekkert endilega
    heppilegt að tiltaka hana sérstaklega sem loftslagsaðgerð. Við höfum verið
    í vinnu með fjármálaráðuneytinu sem miðar að auknum skýrleika í þessum
    efnum og ég vil líka vekja athygli á svörum sem hafa borist við
    fyrirspurnum þingmanna um þessi mál. Það er auðvitað gríðarlega mikilvægt
    þegar við erum að verja miklu fé til þessara mála að þess sé gætt að það
    sé gert með ábatasömum hætti og að við forgangsröðum þeim aðgerðum sem
    fela í sér fjölþættan ávinning, að við forgangsröðum þeim aðgerðum sem
    skila raunverulegum og mestum loftslagsábata. Mér finnst það t.d. mjög
    umhugsunarvert hvernig gengið var fram hér um árabil þegar kemur að
    bílaleigufyrirtækjum. Þar reiknast okkur til að u.þ.b. 10 milljarðar á
    örfáum árum hafi runnið til bílaleigufyrirtækja í nafni loftslagsmála án
    þess að neinn sjáanlegur árangur yrði þegar kemur að rafvæðingu þess
    geira.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>