<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-11T14:29:56" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:31:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:29:56">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn.
    Það vill einmitt svo til að við erum um þessar mundir að taka til í
    aðgerðaáætlun loftslagsmála og útbúa mælikvarða fyrir hverja einustu
    aðgerð. Það er löngu tímabært skref að gera þetta. Við vorum að klára
    þetta og ég hlakka til að birta þessa mælikvarða í lok mánaðar. Í því
    felst ákveðið fjölþáttamat, þ.e. að skoða ávinning, ekki bara út frá
    loftslagsmálum heldur líka samfélagslegan ávinning, umhverfislegan
    ávinning o.s.frv.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil líka benda á ákveðnar breytingar sem hafa orðið hjá
    Loftslags- og orkusjóði núna á síðustu tveimur árum. Annars vegar að tekið
    var upp fagráð sem fer yfir umsóknir út frá einmitt hlutlægum mælikvörðum
    um að aðgerðir skili sem mestum samdrætti í losun á hverja styrkkrónu.
    Hins vegar hefur Loftslags- og orkusjóður tekið upp nýtt verklag þegar
    kemur að ársskýrslu sjóðsins þar sem reiknaður er sérstaklega
    loftslagsábati hverrar aðgerðar í þágu aukins gagnsæis þannig að það ríki
    traust um það að verið sé að nýta þessa fjármuni með skilvirkum og
    skynsamlegum hætti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>