<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T14:31:28" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:34:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:31:28">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra
    fyrir innblásna upphafsræðu sem ég verð nú að segja að stingur svolítið í
    stúf við aðrar ræður sem hafa verið fluttar undir þessum lið í dag og í
    gær. Það er nefnilega þannig, virðulegur forseti, að við þingflokksformenn
    sömdum við forseta þingsins um þessa dagskrá. Við sömdum um að við fengjum
    hæstv. ráðherra til að koma í hús og ræða þeirra málaflokka í stað þess að
    ræða hér við hæstv. fjármálaráðherra í tvo daga. Það er gott og hefur bara
    gengið býsna vel. Þangað til áðan þegar við fengum hæstv. umhverfis-,
    orku- og loftslagsráðherra sem ég velti fyrir mér hvort hafi verið
    tilbúinn með ræðu fyrir stefnuræðu forseta en ekki fengið að flytja hana
    því að hún var flutt núna áðan. Ég kann honum miklar þakkir fyrir. Þar
    minntist hann ekki einu orði á sinn málaflokk sem hann var fenginn til að
    ræða við okkur hv. þingmenn. Þetta er mjög sérstakt, virðulegur
    forseti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En gott og vel. Ég get einhvern veginn ekki látið hjá líða, vegna
    þess að hæstv. ráðherra fór hér enn og aftur að ræða um hið stórkostlega
    fyrirbæri kílómetragjald og ég held að það sé ágætt að við rifjum enn einu
    sinni upp söguna um kílómetragjaldið. Það er alveg hárrétt hjá hæstv.
    ráðherra að þetta var lagt fram og kom inn í þingið á síðasta
    kjörtímabili. Í meðförum þingsins í síðustu ríkisstjórn var tekin ákvörðun
    um að leggja þetta frumvarp ekki fram, klára þetta frumvarp ekki hér á
    þingi, það náði ekki í gegn. Það náði aldrei samþykkt meiri hluta
    þingsins. Að koma svo hér í ræðu og tala um að hér sé um skattalækkun að
    ræða út af frumvarpi sem var ekki samþykkt í þinginu — <ns:bjalla/> ég
    veit ekki hvert menn eru komnir, virðulegur forseti, og ef þetta er
    hagfræðin sem liggur að baki hjá þessari ríkisstjórn þá er hún ekki mjög
    burðug. <ns:bjalla/> Síðasta kílómetragjald síðustu ríkisstjórnar var
    tekjuhlutlaust. Þessi ríkisstjórn bætti við 3,2 milljörðum <ns:bjalla/> og
    aftur 4 núna. En ég vonast eftir umræðum um <ns:bjalla/> málaflokka hæstv.
    umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hér í næsta andsvari.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>