<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-11T14:34:19" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:35:16 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:34:19">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég verð að viðurkenna að ég var aðeins að
    stríða hv. þingmönnum þegar ég kallaði þetta skattalækkun. Ég biðst
    velvirðingar á því. Ég skal ekki sýna þessa léttúð það sem af er þessari
    umræðu. En það sem ég var auðvitað að vísa til er að í fjármálaáætlun
    síðustu ríkisstjórnar var gert ráð fyrir miklu harkalegri gjaldtöku af
    ökutækjum og vegna ökutækja og aksturs heldur en hefur verið skrifað inn í
    t.d. þau fjárlög sem núna eru til umræðu og fjármálaáætlun núverandi
    ríkisstjórnar. Þannig að mér þætti gaman að heyra frá hv. þingmönnum
    stjórnarandstöðunnar, sem hafa jú farið stórum orðum um miklar skatta- og
    gjaldahækkanir o.s.frv., hvernig þau sáu fyrir sér að leysa þetta ef ekki
    með kílómetragjaldinu. Átti að hækka vörugjöldin enn þá meira? Átti að
    hækka gjöldin á dælunni enn þá meira? Það væri mjög forvitnilegt að heyra
    þetta.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>