<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T14:35:25" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:36:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:35:25">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið.
    Afsökunarbeiðnin er að sjálfsögðu tekin til greina. Það sem mig langar að
    spyrja hæstv. ráðherra aðeins að og var til umfjöllunar hér í fyrri ræðu
    og er ekki alveg það sem ég ætlaði að spyrja um en hnaut um — er þegar
    hæstv. ráðherra fór að tala um bílaleigurnar og þessa 10 milljarða sem
    voru settir inn í bílaleigurnar og einhvern veginn virðast hafa skilað sér
    illa. Nú er það þannig, ef ég man rétt, að þú færð ekki rafbílastyrk nema
    kaupa rafbíl og ef ég man þetta rétt sömuleiðis þá er það þannig að
    bílaleigurnar á Íslandi eru langstærsti hlutinn af endursölumarkaði bíla á
    landinu. Það hlýtur þá að vera að með því að bílaleigurnar geti fjárfest
    meira í rafbílum, sem þær hafa væntanlega nýtt þessa 10 milljarða í, séum
    við að fá fleiri rafbíla inn á markaðinn í endursölu. <ns:bjalla/> Er
    þetta rangur skilningur hjá mér, virðulegur forseti?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>