<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-11T14:36:50" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:38:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:36:50">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma inn á
    þetta aftur. Þetta er nokkur ráðgáta. Hvernig var hægt að eyða 10
    milljörðum í orkuskipti hjá bílaleigufyrirtækjum án þess að við sjáum skýr
    merki um það í tölunum yfir t.d. nýskráningar bensín- og dísilbíla annars
    vegar og rafbíla og tengiltvinnbíla hins vegar? Það sem við sjáum er að
    hlutfall rafbíla hjá ökutækjaleigunum hefur varla hækkað svo neinu nemi,
    kannski farið úr 7% upp í 12% eða eitthvað slíkt á nokkrum árum. Með öllum
    þessum fjármunum, bæði með beinum framlögum og með ýmsum skattaívilnunum
    og afsláttum, þá skilst mér að þetta séu 9,8 milljarðar. Ég myndi glaður
    vilja með fjármálaráðuneytinu deila þessum upplýsingum með þingheimi og
    þessari samantekt. Staðan er enn þannig að almenningur er að veðja á
    rafbíla en ekki bílaleigurnar. <ns:bjalla/> Í rauninni stjórna kaup þeirra
    að miklu leyti eftirmarkaðnum, bílaleigurnar stjórna því hvernig bílar eru
    í boði <ns:bjalla/> á eftirmarkaði á næstu árum. Þar hefur sáralítill
    árangur náðst.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>