<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T14:38:30" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:40:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:38:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hæstv. umhverfis-, orku-
    og loftslagsráðherra fyrir ræðu sína hér í upphafi þó að ég vilji meina að
    hún hafi verið algjörlega út úr kú og auðvitað ekki átt heima í þessari
    umræðu þótt hressileg væri. Mig langar samt í ljósi þess að sú ræða var
    flutt að byrja á því að segja mína skoðun á frammistöðu núverandi
    ríkisstjórnar og vil benda föðurlega á að það hefði verið skynsamlegra að
    vera með meiri væntingastjórnun í upphafi. Ríkisstjórnin hafði mjög mikið
    fylgi og býr í rauninni jafnvel enn að því. Þess vegna hefði ríkisstjórnin
    í rauninni átt að nota tækifærið til þess að vara Íslendinga við því að
    það myndi verða erfitt að takast á við það verkefni sem fyrir lá. Þá
    hefðum við t.d. getað sparað þessa 134 milljarða sem hafa t.d. komið í
    mínus núna á síðustu tveimur árum. Við værum ekki að glíma við það, það
    væri mun lægri tala. Mér fannst samt steininn taka úr þegar hæstv.
    ráðherra fór að ræða börn með fjölþættan vanda. Ég verð að segja að það er
    eiginlega móðgun við sveitarfélögin í landinu að tala hér um börn með
    fjölþættan vanda þegar það er algerlega augljóst að ríkið er ekki að gera
    neitt annað alla daga en að skilgreina sig frá þeim samningi og láta
    sveitarfélögin sitja uppi með nákvæmlega sama reikning og þau voru með,
    það er niðurstaðan. En varðandi málefnasvið ráðherra þá langar mig til að
    forvitnast á þessum 20 sekúndum sem ég á eftir og velta því upp við
    ráðherrann, af því að hann er að spara og hann er að spara helling — ég sé
    ekki nákvæmlega, t.d. varðandi loftslagssjóðinn, hvar þessi sparnaður er
    að koma niður. Það væri gaman ef ráðherra gæti kannski farið örlítið yfir
    það hvernig sá sparnaður skiptist þannig að maður hafi aðeins hugmynd um
    hvað maður er að horfa fram á.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>