<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-11T14:40:50" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:42:55 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:40:50">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er fráleitt að tala eins og ríkisstjórnin
    sé að vanrækja með einhverjum hætti málefni barna með fjölþættan vanda
    þegar einmitt eitt af okkar fyrstu verkum er að skrifa undir samning við
    sveitarfélögin og stórauka framlög ríkisins til þessara málaflokka. Já,
    svo er deilt um skilgreiningar o.s.frv. en það breytir ekki því að ríkið
    er að stíga þarna inn af meiri krafti en gert hefur verið árum
    saman.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi væntingastjórnun þá höfum við auðvitað reynt að tala
    skýrt frá því að við tókum við um að verkefnið sé að laga ríkisfjármálin,
    greiða niður skuldir, fækka verkefnum, stofnunum og ráðuneytum. Þetta
    hefur gengið eftir og nú erum við komin á þennan stað að leggja loksins
    fram hallalaus fjárlög. Það skiptir gríðarlegu máli upp á væntingar til
    framtíðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi fjárheimildir Loftslags- og orkusjóðs þá hafa þær verið
    mjög verulegar á undanförnum árum, t.d. yfir 11 milljarðar árið 2025, sem
    gerði okkur kleift að ráðast í stærsta orkuskiptaátak sögunnar úr sjóðnum.
    Ég tel í þessu ljósi eðlilegt að þessi málaflokkur taki á sig aðhald eins
    og flestir málaflokkar ríkisins núna. Þá er það verkefni okkar að
    forgangsraða þeim aðgerðum sem skila mestum ávinningi. Því miðar vel. Við
    höfum auðvitað verið að styðja við orkuskipti í samgöngum með styrkjum til
    kaupa á rafbílum en um leið hafa orðið ákveðnar breytingar á gjaldtöku sem
    hafa gert rafbíla samkeppnishæfari í verði en áður miðað við bensín- og
    dísilbíla. Ég held að auðvitað geri allir ráð fyrir því að þeir styrkir
    muni breytast eitthvað á næstu mánuðum og árum. Ég held að það sé
    óhjákvæmilegt, sérstaklega í ljósi þessa markmiðs okkar um að nýta þessa
    fjármuni með skilvirkum og skynsamlegum hætti þannig að loftslagsábatinn
    verði sem mestur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>