<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T14:43:05" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:44:33 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:43:05">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég ætla að þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið
    varðandi loftslagssjóðinn. Ég held að það sé einmitt mikilvægt að það komi
    strax fram þannig að mönnum sé ljóst hvað þar er að fara að
    gerast.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég get ekki látið hjá líða að svara þessu með börn með fjölþættan
    vanda. Ég þekki þennan vanda alveg ágætlega. Ég var í sveitarstjórn áður
    en ég fór hingað inn á þing og ég veit nákvæmlega hvaða tölur er um að
    ræða og ég veit nákvæmlega hvaða væntingar sveitarstjórnirnar hafa í þeim
    efnum. Það dugar ekki að ríkið komi fram, geri samning, hafi hann óljósan
    og ætli síðan að skilgreina sig frá vandanum með því að þrengja þennan hóp
    þannig að það standi eftir þriðjungur af þeim sem um ræðir. Það bara
    gengur ekki upp, hæstv. ráðherra, svo það sé sagt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar síðan að lokum að spyrja hæstv. ráðherra — nú fór hann
    í umfangsmiklar sameiningar á heilbrigðiseftirlitsumdæmunum og tók yfir
    þann hluta verkefnisins sem tilheyrði heilbrigðiseftirlitunum áður.
    <ns:bjalla/> Hvar sé ég þess merki í þessum áætlunum? Ég veit að menn gera
    ráð fyrir að til lengri tíma verði þetta tekjuhlutlaust. <ns:bjalla/> En
    ég sakna þess að sjá ekki, alla vega t.d. hér í launa- og verðlagsbótum,
    að það sé gert ráð fyrir einhverju slíku.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>