<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-11T14:44:41" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:45:58 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:44:41">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Varðandi börn með fjölþættan vanda þá er staðan núna sú
    að sveitarfélög eru í betri stöðu en áður upp á 3 milljarða vegna þeirrar
    aðgerðar sem ríkisstjórnin fór í að þessu leyti. Ég get því ekki tekið
    undir það að ríkisstjórnin hafi með einhverjum hætti valdið skaða í þessum
    málaflokki með því að setjast niður með sveitarfélögum og semja við þau og
    stórauka framlög ríkisins til þessa viðkvæma málaflokks. Ég blæs á
    það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi heilbrigðiseftirlitin þá er það auðvitað þannig að þau
    hafa alltaf verið fjármögnuð að verulegu leyti í gegnum gjaldskrár. Því
    verður ekkert breytt þegar þau færast yfir. Ég geri ekki ráð fyrir að þau
    auknu útgjöld sem þessi starfsemi kallar á hjá minni undirstofnun kalli
    endilega á frekari fjárheimildir. Þetta verður innan ramma en það sem
    gerist er að tekjurnar sem áður runnu til heilbrigðiseftirlits svæðanna
    renna að mestu leyti til Umhverfis- og orkustofnunar til þessarar
    starfsemi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>