<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T14:46:10" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:48:33 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:46:10">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Orðið orkuskipti bar fyrst á góma í þingsal
    árið 2010, hygg ég. Síðan hafa liðið mörg ár og tugir, ef ekki hundruð,
    milljarða hafa farið til verkefna sem hafa verið skilgreind sem verkefni á
    sviði orkuskipta. Niðurstaðan af öllu þessu bixi er enginn árangur. Notkun
    endurnýjaðrar orku sem hlutfall af innfluttum orkugjöfum er enn í dag sama
    hlutfall og var 2010. Ástæðan er auðvitað sú að vegna þess að Íslendingar
    eru heimsmeistarar í notkun endurnýjanlegrar orku höfum við frá árinu 2010
    og löngu fyrir þann tíma verið með 80% eða 90% endurnýjanlegrar orku af
    allri okkar orkunotkun. Það er í þessu ljósi sem það er svo grátlegt að
    sjá þessum fjármunum eytt í hin og þessi verkefni sem hefur valdið því að
    hinir og þessir, sumir, ekki allir, hafa getað mokað úr ríkissjóði fé til
    einhverra verkefna sem hafa síðan engum árangri skilað og var fyrirséð að
    myndi ekki skila nokkrum árangri, vegna þess að Íslendingar eru
    heimsmeistarar í þessu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sé ekki
    sammála mér í því að við eigum að hætta að líta til þessara
    loftslagsmarkmiða endalaust. Við eigum að líta frekar til þeirra hagsmuna
    sem Íslendingar hafa almennt og hvað það er hagkvæmt. Hvað er hagkvæmt
    fyrir Íslendinga? Hæstv. ráðherra nefnir það hér að hann vilji ekki koma
    EES-samningnum í uppnám með því að hrófla við ETS-kerfinu. En segjum sem
    svo að það yrði ekki, segjum sem svo að hægt væri að breyta ETS-kerfinu
    með því að fara út úr því án þess að hrófla við EES-samningnum, væri
    hæstv. ráðherra þá sammála mér um það að það væri skynsamlegt fyrir
    Íslendinga að fara út úr ETS-kerfinu ef við gætum verið áfram með
    EES-samninginn? Ég spyr sérstaklega um hugmyndafræðina. <ns:bjalla/> Er
    hann sammála mér í því að þetta ETS-kerfi víki ekki í neinu að hagsmunum
    Íslendinga og þjóni hvorki þörfum né hagsmunum Íslendinga?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>