<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-11T14:48:40" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:50:47 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:48:40">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Hér er komið inn á margt. Ég held að það sé
    mikilvægt að rugla ekki saman orkunotkun og orkuframleiðslu. Við höfum
    verið að taka okkur á á síðustu árum þegar kemur að orkunotkun, t.d. í
    samgöngum, og ég held að það sé gríðarlegur ávinningur og ábati fólginn í
    því sem við getum kallað styrkara orkufullveldi, að við þurfum síður að
    reiða okkur á innflutt eldsneyti með öllum þeim sveiflum í
    heimsmarkaðsverði sem því fylgir. Þannig að hv. þingmaður hlýtur að vera
    sammála mér í því að orkuskipti skipta sannarlega máli að þessu leytinu
    til, bæði fyrir fyrirtæki og heimili. Það er til mikils að vinna
    þarna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi loftslagssamstarf Íslands og Evrópusambandsins eru þar
    auðvitað bæði áskoranir og tækifæri. Ég held að ETS-kerfið hafi að mörgu
    leyti verið mikilvægt fyrir iðnað á Íslandi og mikilvægt að vera inni í
    því rétt eins og það verður mikilvægt að vera inni í CBAM-kerfinu þegar
    það verður innleitt. Hvað ETS-kerfið varðar og stöðu Íslands í því þá
    höldum við auðvitað áfram að gera það sem við erum að gera, sem er einmitt
    það, eins og hv. þingmaður talaði um, að verja hagsmuni Íslands í
    loftslagssamstarfi. Leikreglurnar þurfa að vera sanngjarnar, það gengur
    ekki að refsa t.d. Íslandi fyrir fjarlægðir, fyrir landfræðilega stöðu
    okkar. Einmitt þess vegna sóttumst við eftir og fengum sérlausn þegar
    kemur að fluginu. Ég hefði viljað sjá sams konar leiðangur í
    skipaflutningum og þar erum við núna að beita okkur gagnvart
    Evrópusambandinu þegar kemur að endurskoðun ETS-kerfisins. En varðandi
    ETS-kerfið svona „prinsippelt“ þá get ég ekki fallist á að
    grunnhugmyndafræði þess sé röng eða slæm. En útfærslan skiptir máli og þar
    munu íslensk stjórnvöld halda áfram að beita sér af fullum þunga fyrir
    hagsmunum Íslands.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>