<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T14:50:51" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:52:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:50:51">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er leiðinlegt að hlýða á hæstv. ráðherra
    sem hljómar hér eins og biluð plata. Leiðinlegt því að hann er ungur og
    nýkominn í pólitík og hann á ekki að hljóma eins og biluð plata á fyrstu
    metrum síns stjórnmálaferils. Það er rangt sem hann segir að einhver
    árangur hafi orðið í orkuskiptum. Ég endurtek það sem ég sagði áðan: Það
    hafa engin orkuskipti orðið frá árinu 2010 til dagsins í dag. Orkuskiptin
    á Íslandi fóru fram fyrir áratugum. Við höfum náð þessum árangri sem önnur
    ríki eru að reyna að ná með orkuskiptaumræðunni allri.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En mig langar að spyrja sérstaklega út í Orkusjóð og þann
    niðurskurð sem þar er sem hægt er að fagna. Ef ég skil fréttir rétt þá er
    hins vegar markmiðið, eða áform stjórnvalda um það, að ráðstafa hátt í 1,5
    milljarði af því fé sem tekið er úr Orkusjóði til niðurgreiðslu til
    flugrekenda. Mér finnst það skjóta skökku við í ljósi þess að það hafa
    farið fréttir um einhverjar sérstakar sérlausnir fyrir Ísland þegar kemur
    að þessu ETS-losunarbixi öllu saman í fluginu. <ns:bjalla/> En er það rétt
    skilið? Á að fara að niðurgreiða núna þessa þátttöku í losunarheimildunum?
    <ns:bjalla/> Þá hlýt ég að spyrja: Út á hvað gengu þessar
    sérlausnir?</ns:mgr>

    <!--***ATH heyri ég þetta rétt?-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>