<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-11T14:52:27" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:53:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:52:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Aðeins aftur um orkuskiptin. Það er t.d. þannig
    að á síðustu árum hefur ferðamönnum fjölgað upp í tæpar 2 milljónir á ári
    en á sama tíma hefur samt verið að nást árangur í samdrætti losunar frá
    vegasamgöngum. Mér finnst það nú bara ákveðið kraftaverk og einmitt til
    marks um það að orkuskiptin hafa gengið ágætlega og skilað —
    <ns:frammíkall/>Ja, hv. þingmaður er alltaf að tala um orkuframleiðslu, ég
    er líka að tala um orkunotkun eins og maður gerir þegar maður talar um
    orkuskipti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi ETS-sérlausnina þá hefur það alltaf legið fyrir að í
    sérlausninni felst ráðstöfun á þessum losunarheimildum, þessum
    endurgjaldslausu losunarheimildum á kostnað ríkisins. Þannig var það þegar
    samið var um sérlausnina á sínum tíma og þannig er það ennþá til að
    styrkja samkeppnishæfni tengiflugs á Íslandi, þannig að það er ekkert nýtt
    í þessu. Þetta er það sem felst í sérlausnum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>