<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T14:53:43" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:55:44 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:53:43">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að halda áfram með þennan
    þráð sem ég var með áðan varðandi bílaleigurnar. Ég verð eiginlega að
    viðurkenna að ég skil ekki hvernig hægt er að komast á þennan stað. Það er
    alveg ljóst samkvæmt regluverkinu að ef þetta eru 9,8 milljarðar kr. sem
    bílaleigurnar hafa verið að fá í styrki til að kaupa rafbíla og það skilar
    sér ekki út á endursölumarkaðinn þá er það mjög undarlegt. Ég næ ekki utan
    um hvernig það getur einhvern veginn gerst.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það sem mig langar hins vegar að spyrja hæstv. ráðherra að er að í
    kafla 15 í fjárlögunum, Orkumál, eru hérna fjármagnstilfærslur sem eru
    samkvæmt ríkisreikningi 2025 rúmir 11 milljarðar kr. Samkvæmt fjárlögum
    2026 fara þær niður í tæpa 5,2 milljarða kr. og 1,9 samkvæmt frumvarpinu.
    Ég skal bara viðurkenna fáfræði mína á þessu sviði en mig langar að spyrja
    hæstv. ráðherra: Hvað er að gerast þarna? Vegna þess að þetta er alveg
    rosalega mikil lækkun á milli ára, aðallega milli ríkisreiknings 2025 og
    fjárlaga 2026 og síðan enn þá meira núna í frumvarpinu. Ef hæstv. ráðherra
    gæti útskýrt fyrir mér hvað þetta er.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>