<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T14:56:21" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:57:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:56:21">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir heiðarlegt
    svar. Þetta eru bara þannig tölur að þær stinga í augu þegar maður les
    fjárlagafrumvarpið og málefnasviðin þannig að ég held að það væri mjög
    hollt fyrir okkur og þau sem eru í fjárlaganefnd að fá betri skýringar á
    þessu frá hæstv. ráðherra þegar þær liggja fyrir því að það er alveg ljóst
    að þær eru til.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En ef hæstv. ráðherra gæti í síðustu mínútu sem hann fær hér í
    andsvari við mig kannski aðeins farið aftur yfir í bílaleigubílana.
    Spurningin er bara einföld: Er ekki ástæða til að skoða þetta mál einhvern
    veginn ofan í kjölinn ef þessir 9,8 milljarðar kr. í orkuskipti til
    bílaleiga hafa ekki skilað sér með þeim hætti sem ráð var gert fyrir? Er
    ekki full þörf á einhverri skoðun á því máli af hálfu hæstv.
    ráðherra?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>