<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-11T14:57:34" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 14:58:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:57:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég held að það sé full ástæða til að fara ofan
    í kjölinn á þessu. Það sem nýjustu tölur um nýskráningu fólksbíla segja
    okkur er að almenningur og fyrirtæki, þ.e.a.s. önnur en ökutækjaleigur,
    hafa verið að rafvæðast mjög hratt. Yfir 80% nýskráninga bifreiða á vegum
    þeirra eru rafbílar en sambærilegt hlutfall hjá ökutækjaleigum er 14%. Það
    er ákveðin aukning. En ef þetta er í alvörunni það sem stefnt var að með
    10 milljarða kr. beinum og óbeinum útgjöldum úr ríkissjóði, þá er það
    auðvitað mjög slæm ráðstöfun á peningum. Þannig að ég tek undir það með
    hv. þingmanni að full ástæða er til að ráðuneytin og nefndir þingsins fari
    betur yfir þetta og þetta er eitt af því sem hefur verið til skoðunar hjá
    framkvæmdahópi orkuskipta sem er á vegum míns ráðuneytis,
    atvinnuvegaráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins. Þannig að ég hvet til
    frekari umræðu um hvernig þetta gerist, að það fari 10 milljarðar kr. af
    almannafé til bílaleigufyrirtækja án þess að árangurinn þegar kemur að
    orkuskiptum sé meiri en raun ber vitni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>