<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-11T14:59:07" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:04:04 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T14:59:07">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Í fyrsta sinn frá árinu 2019 eru nú lögð fram
    hallalaus fjárlög. En þrátt fyrir að hallalaus fjárlög feli eðli málsins
    samkvæmt í sér aðhald á fjölmörgum sviðum felur frumvarpið í sér styrkingu
    á ákveðnum þáttum heilbrigðisþjónustunnar því ríkisstjórn Kristrúnar
    Frostadóttur hefur boðað styrkingu heilbrigðis- og öldrunarþjónustu um
    land allt. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir 10,7 milljarða
    viðbótarfjármagni til heilbrigðismála. Þeir fjármunir fara í styrkingu á
    bráðaþjónustu, endurhæfingu, hjúkrunarþjónustu, sérnám lækna og sérstakar
    aðgerðir til að stytta biðlista barna. Stærsti einstaki þátturinn eru 5,4
    milljarðar vegna raunvaxtar sem endurspeglar aukna þjónustuþörf vegna
    fólksfjölgunar og öldrunar þjóðarinnar. Þá er 1 milljarði kr. veitt til
    rekstrar nýrrar bráðamatsdeildar á bráðamóttöku Landspítala og rúmum
    milljarði til að gera tímabundna fjárveitingu til endurhæfingarstofnana
    varanlega, m.a. vegna áfengis- og vímuefnameðferðar og annarrar
    endurhæfingar. Þá er líka um að ræða rekstur nýrra hjúkrunarheimila. Þá er
    500 millj. kr. varið í styttingu biðlista barna og 500 millj. kr. í bætta
    þjónustu við eldra fólk. Þá eru 240 millj. kr. í aðgerðir til að draga úr
    ofbeldi gegn og meðal barna. Þessar fjárveitingar, virðulegi forseti,
    endurspegla áherslu ríkisstjórnarinnar á að styrkja rekstrargrundvöll
    heilbrigðiskerfisins. Undanfarin ár hafa ákveðnir liðir hjá
    Sjúkratryggingum Íslands verið vanfjármagnaðir og í tíð fyrri
    ríkisstjórnar voru gerðir stórir samningar um rekstur mikilvægrar
    heilbrigðisþjónustu en án viðeigandi fjármögnunar. Hér er brugðist við með
    5,5 milljarða styrkingu. Þar eru auknar fjárheimildir vegna
    sjúkraþjálfunar 1,6 milljarðar, lækniskostnaður um 1 milljarður, brýn
    meðferð erlendis 800 millj. kr., almenn og leyfisskyld lyf samtals 1,6
    milljarðar og tannlækningar ríflega 500 millj. kr. Jafnframt þessari
    styrkingu hafa heilbrigðisráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið
    unnið áhættumat á útgjöldum heilbrigðiskerfisins þar sem farið var yfir
    stöðu og útgjaldaþróun sjúkratryggingaliða og undirliggjandi veikleika sem
    hafa myndast í fjármögnun þeirra. Með fjárlögum 2027 er stigið mikilvægt
    skref í átt að því að færa fjárheimildir þessara liða nær fyrirsjáanlegum
    útgjöldum. Áfram verður þörf á virkri eftirfylgni með útgjaldaþróun og
    aðgerðum til að bæta stýringu og eftirlit með greiðslum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Heilbrigðiskerfið er ekki undanskilið eðlilegri kröfu
    um aðhald í rekstri og hagræðingu. Endurskoðun og umbætur eru
    eilífðarverkefni í öllum rekstri. Aðhald á málefnasviðum
    heilbrigðisráðuneytisins er m.a. 8 milljarðar vegna Nýs Landspítala þar
    sem uppsafnaðar fjárheimildir koma á móti og þetta hefur því ekki áhrif á
    framkvæmdahraða og -áætlun. Þar fyrir utan nemur aðhald á málefnasviðum
    ráðuneytisins um 2,9 milljörðum kr. Þar vegur þyngst aðhald vegna
    opinberra innkaupa um 790 millj. kr. og 1% fækkunar stöðugilda hjá ríkinu
    um 746 millj. kr. þar sem áhersla er lögð á að hlífa framlínustörfum.
    Aðhaldið nær einnig til stjórnsýslu- og þjónustustofnana. Í stjórnsýslu
    nemur aðhaldið um 2.212 millj. kr. og tekur m.a. til aðalskrifstofu
    ráðuneytisins, Sjúkratrygginga, embættis landlæknis og
    Lyfjastofnunar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það verður áhugavert að heyra sjónarmið hv.
    þingmanna um fjárveitingar til heilbrigðismála en það er málaflokkur sem
    flestir láta sig varða.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>