<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T15:04:13" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:06:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:04:13">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er margt áhugavert sem kemur fram í
    fjárlögunum undir þessum málaflokki en öflugt heilbrigðiskerfi er ein af
    mikilvægustu stoðum íslensks samfélags. Ég held við getum öll verið
    sammála um það. Heilbrigðisþjónustan á að vera öllum aðgengileg óháð
    efnahag. Á því byggist traust almennings á kerfinu. Svo greinir okkur á um
    hvort aukinn ríkisrekstur sé besta leiðin til að ná skilvirkni í
    þjónustunni eða hvort fjölbreytt rekstrarform og aukið samstarf við
    sjálfstætt starfandi bæti þjónustuna. En nú vill svo til að undir forystu
    ráðherra Samfylkingarinnar, á miðju sumri þegar umræða um
    þjóðaratkvæðagreiðslu stóð sem hæst, eru komugjöld í heilsugæslu hækkuð og
    ný gjöld boðuð. Um er að ræða breytingar sem auka í raun kostnað sjúklinga
    við að leita sér lækninga en fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, lágtekjufólk
    eða langveika, skiptir hver króna oft máli. Þetta er ákvörðun sem bitnar
    harðast á þeim sem höllum fæti standa og með þessu er verið að snúa við
    þróun sem hafði verið um árabil og í tíð síðustu ríkisstjórnar um að draga
    úr greiðsluþátttöku sjúklinga í heilsugæslu. Á síðasta áratug lækkaði
    komugjald úr 1.200 í 500 kr., gjöld aldraðra og öryrkja voru felld niður
    og önnur lykilgjöld fryst árum saman. Þessar hækkanir hafa skiljanlega
    fengið mjög hörð viðbrögð úr ýmsum áttum, bæði vegna fordæmis og áhrifa á
    vísitölu og verðbólgu en ekki síður vegna áhrifanna á þá efnaminni í
    samfélaginu sem í einhverjum tilvikum munu þurfa að neita sér um þjónustu,
    t.d. sjúkra- eða iðjuþjálfara. Vegna þess hve bratt þessar hækkanir skullu
    á og harðra viðbragða langar mig að spyrja hæstv. ráðherra: Eru þeir sem
    nýta mest umrædda þjónustu breiðu bökin í samfélaginu að hennar mati eða
    finnst henni koma til greina að hverfa frá þessari ráðagerð og draga hærri
    <ns:bjalla/> og ný komugjöld t.d. til baka og leita annarra leiða í
    fjármögnun?</ns:mgr>

    <!--Hlusta 15:05:43 Mér heyrist hún segja „lykilgjöld“ //glg-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>