<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-11T15:06:45" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:08:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:06:45">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Þetta eru góðar spurningar og áhugaverðar hjá hv. þm.
    Rósu Guðbjartsdóttur. Það er rétt að hér hafa engar hækkanir orðið á
    komugjöldum í heilsugæslu, ef við byrjum á þeim. Gjaldið hefur verið 500
    kr. og ókeypis fyrir aldraða, öryrkja og börn. Það hafa heldur engar
    verðlagsuppfærslur verið gerðar í fjölda ára. Þannig að okkur finnst þetta
    hófleg hækkun, að hækka komugjöld í heilsugæslu úr 500 kr. í 1.000 kr. og
    sem fyrr greiða aldraðir, öryrkjar og börn ekkert komugjald. Aukinheldur
    eru komugjöld á heilsugæslu inni í afsláttarstofni í greiðsluþátttökukerfi
    þannig að þetta mun ekki bitna á þeim sem þurfa að nýta mikla
    þjónustu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan heyrði ég að þingmaðurinn kom inn á komugjöld í þjálfun og
    það er annað mál. Þar erum við að setja komugjöld því að í maí 2024 var
    undirritaður samningur milli Sjúkratrygginga og sjúkraþjálfara til fimm
    ára eftir rúmlega fjögurra ára samningsleysi. Það var ekki gert ráð fyrir
    neinum fjármunum vegna samningsins í fjármálaáætlun eða fjárlögum. Það var
    rætt við samningaborðið að þessu yrði mætt að hluta með komugjöldum. Til
    þess þurfti að setja lagaheimild og hún var leidd í lög með breytingu á
    lögum um sjúkratryggingar 1. júní. Kostnaður vegna sjúkraþjálfunar hefur
    aukist gríðarlega og ég vona að ég fái að halda áfram með þetta mál í
    seinna svari.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>