<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T15:09:02" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:10:23 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:09:02">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Eins og ég
    kom inn á í fyrri ræðu minni þá hafa viðbrögðin við þessu verið mjög mikil
    og hörð, skiljanlega í mörgum tilvikum. Ekki síst vekur það undran að
    fyrir síðustu kosningar lofaði einmitt Samfylkingin jöfnu aðgengi að
    heilbrigðisþjónustu, að efnahagur réði ekki þjónustu og að viðkvæmasti
    hópurinn yrði settur í forgang, eins og það var orðað, og að eldra fólk
    fengi heiðurssess í heilbrigðiskerfinu. En nú hefur gagnrýni komið einmitt
    á það að þessar aðgerðir komi ekki heim og saman við þessi
    loforð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Því langar mig, vegna þessarar stefnubreytingar sem ég lýsti líka
    áðan og þróunar síðustu ára og stefnu fyrri ríkisstjórna — það er
    náttúrlega þessi gjörbreytta afstaða Samfylkingarinnar sem vekur athygli.
    <ns:bjalla/> Við höfum rétt á og það væri áhugavert að heyra hvað veldur
    henni og hvaða skilaboð ríkisstjórnin er að senda þeim sem þurfa mest á
    þessari þjónustu að halda.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>