<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-11T15:10:29" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:11:40 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:10:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég var búin að fara yfir hvað heilsugæsluna varðar að
    hér er verðlagsuppfærsla sem bitnar ekki á öldruðum, öryrkjum og börnum.
    Varðandi sjúkraþjálfunina þá er þar samningur sem var mjög vanfjármagnaður
    og var beinlínis rætt um að komugjöld yrðu notuð til að mæta honum. Við
    erum með lægstu gjöldin á aldraða og öryrkja og þetta er tímabundið á
    meðan verið er að endurmeta greiðsluþátttökukerfið. Ég hyggst setja af
    stað starfshóp sem endurmetur það og metur sérstaklega hvort það eigi að
    tekjutengja greiðsluþátttöku því að markmiðið er auðvitað að dreifa
    kostnaði með sem sanngjörnustum hætti, tryggja aðgengi þeirra sem þurfa
    þjónustu og vernda einstaklinga fyrir mjög háum útgjöldum. En við þurfum
    líka að huga að sjálfbærni fjármögnunar heilbrigðiskerfisins til
    framtíðar. Það er nánast óendanleg eftirspurn og við verðum að hafa
    sjálfbærni í huga.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>