<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T15:11:46" skst="MRK" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:13:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:11:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina og tek
    undir margt sem þar kom fram. Það kostar að reka samfélag og það kostar að
    reka gott samfélag og ég fagna því að hlutfall grunnkerfa í þessu
    fjárlagafrumvarpi af heildarútgjöldum hefur ekki verið jafn hátt frá því í
    Covid eða 63,64%. Með öðrum orðum erum við að ná að verja grunnkerfin
    okkar þrátt fyrir það aðhald sem hér er boðað, það eru 44 milljarðar í
    aðhald og svo tekjur á móti. Til að halda því til haga erum við að ná að
    vernda grunnkerfin en ná samt hallalausum fjárlögum í erfiðu umhverfi.
    Þetta kallar á aga, þetta kallar á festu og hugrekki til að standa í
    lappirnar og klára málin vegna þess að langbesta kjarabótin sem við gefum
    fyrirtækjum og almenningi í landinu er auðvitað stöðugleiki,
    fyrirsjáanleiki og lægri vextir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En mig langaði aðeins að tala um biðlistamálin af því að ég held
    að dýrasti biðlisti sem við bjóðum upp á séu líklega biðlistar barna vegna
    þess að fjárfesting í framtíðinni er líklega mikilvægasta fjárfesting sem
    við getum farið í. Síðasta vetur voru forsprakkar biðlistar.is mjög
    duglegir við að halda okkur við efnið, með réttu, og voru að kalla eftir
    aðgerðum þegar kemur að því að ná að grípa börnin okkar miklu fyrr og ég
    held að það sé algjörlega þverpólitísk samstaða um að gera það. En ég væri
    til í að fá að heyra aðeins um það í mínu fyrra andsvari hver staðan er á
    biðlistum barna? Hvernig verða fjármunir nýttir til að koma enn frekar til
    móts við þessa stöðu sem hefur verið viðvarandi allt of lengi?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>