<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-11T15:13:54" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:16:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:13:54">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur fyrir
    sérlega góða og mikilvæga spurningu. Það er eitt af áherslumálum
    ríkisstjórnarinnar að bæta geðheilbrigðisþjónustu og stytta biðlista
    barna. Að þessu hef ég unnið frá fyrsta degi, byrjaði á Geðheilsumiðstöð
    barna og við styrktum hana í tvígang á síðastliðnu ári. Þar fara fram
    greiningar á ADHD og einhverfu og við fórum líka í innri umbótavinnu til
    að efla skilvirkni. Síðan erum við í mörgum tilraunaverkefnum, sérstaklega
    á landsbyggðinni, t.d. á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Þar er verið að
    greina ADHD og Geðheilsumiðstöðin hjálpar þeim og þau eru að verða búin að
    vinna sig niður sinn biðlista. Á Heilbrigðisstofnun Norðurlands erum við
    búin að styrkja um geðlækni. Þau eru sömuleiðis að hefja þessar greiningar
    og við munum líka ætla sálfræðingum í skólum að gera meira. Þau gera
    greininguna, heilbrigðiskerfi staðfestir hana og hefur meðferð.
    Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er í sama verkefni og barna- og
    unglingageðdeild (BUGL) er síðan í átaksverkefni vegna elstu barnanna,
    5–18 ára, og þeirra sem eiga á hættu að falla í NEET-hópinn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Einhverfa er líka greind í Ráðgjafar- og greiningarstöð sem heyrir
    undir annan ráðherra en þar erum við að skoða hvernig hægt er að
    skipuleggja þjónustuna betur. Loks eru það talmeinin. Þar erum við búin að
    gera miðlægan biðlista sem er loksins tilbúinn og þar er verið að setja
    inn á listann. Síðan munu forráðamenn barna fá tilkynningu og þurfa að
    staðfesta að barnið sé enn að bíða. Það er verið að semja við sjálfstætt
    starfandi. Það er verið að ráða fleiri inn til Heyrnar- og talmeinastöðvar
    og við erum líka að nýta betur skólaheilsugæslu og það hefur verið auglýst
    eftir talmeinafræðingum þangað. <ns:bjalla/> Þannig að þetta er mjög
    viðamikið og við höfum fengið 500 millj. kr. á fjárlögum næsta árs og það
    verður örugglega ekki erfitt að nýta það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>