<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-11T15:16:23" skst="MRK" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:17:29 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:16:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á því að fagna því að fá að heyra aðeins
    um verkefnalista hæstv. ráðherra vegna þess að þetta eru gríðarlega
    mikilvægar upplýsingar að fá fram hér, að við séum raunverulega að ráðast
    að þessum biðlistum. Það er, ætla ég að fullyrða, besta fjárfesting sem
    þetta samfélag getur farið í vegna þess að mannauðurinn okkar er það sem
    skiptir okkur öllu máli.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Af því að hæstv. ráðherra vék hér aðeins að þjónustu úti á landi
    þá vil ég fagna því sérstaklega að það sé verið að færa þjónustuna nær
    fólkinu í staðinn fyrir að fólk sé stöðugt að fara til Reykjavíkur og
    sækja þjónustu sem getur bæði tekið mikinn tíma og orku af fjölskyldum sem
    eru kannski í greiningarferli. Að færa þjónustuna heim skiptir ofboðslega
    miklu máli og ég hvet hreinlega ráðherra til dáða að fylgja þessu fast
    eftir og láta verkin tala. Þetta eru gríðarlega mikilvæg mál vegna þess að
    við vitum að snemmtæk íhlutun skilar sér í bjartri framtíð og það er
    þangað sem við eigum að stefna. Ég er því í raun ekki með spurningu heldur
    bara að fagna því að hafa fengið þetta góða svar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>