<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="heilbrrh." frhr="0" id="r2026-09-11T15:17:36" skst="AMöll" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-11 15:18:36 -->

  <ns:umsýsla fundur="4" lgþ="158" tími="2026-09-11T15:17:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur kærlega
    fyrir jákvæð viðbrögð. Það er alveg hárrétt sem hún segir: Þetta er ein
    arðbærasta fjárfesting sem samfélagið getur gert og hagfræðingurinn James
    Heckman hefur sýnt fram á að þetta skilar sér áttfalt til baka og því fyrr
    sem gripið er inn í, þeim mun betra. Hann er nóbelsverðlaunahafi. En við
    erum auðvitað að gera margt fleira í geðheilbrigðisþjónustu; þetta voru
    einungis greiningarnar. Við erum með geðheilsuteymi í hverju
    heilbrigðisumdæmi. Við erum að styrkja barna- og unglingageðteymi á
    Norðurlandi. Heilbrigðisstofnun Austurlands, þar sem mikið hefur dunið á,
    fékk sérstaka styrkingu. Við erum að bæta geðþjónustu í framhaldsskólum og
    svo mætti lengi telja. Á síðastliðnu ári bættum við í
    geðheilbrigðisþjónustu á þriðja milljarði kr.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>